Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 469/2022-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 469/2022

Fimmtudaginn 2. febrúar 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 20. september 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. janúar 2022, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. janúar 2022, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar með vísan til 52. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. september til 31. desember 2021.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 20. september 2022. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 6. október 2022, var kæranda tilkynnt að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hann að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gætu átt við í málinu. Athugasemdir bárust ekki. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. október 2022, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust 8. nóvember 2022. Með bréfi, dags. 23. nóvember 2022, var Vinnumálastofnun tilkynnt að úrskurðarnefndin hefði ákveðið að taka málið til meðferðar þrátt fyrir að kæra hafi borist að liðnum kærufresti með vísan til 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Óskað var eftir greinargerð Vinnumálastofnunar og barst hún úrskurðarnefndinni 1. desember 2022. Þar kom fram að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því væri fallist á kröfur hans um að fella niður skuld við stofnunina. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. desember 2022, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð 9., 11. og 12. janúar 2023. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 5. janúar 2022, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar velferðarmála var vísað til þess að ranglega hefði verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því væri fallist á kröfur hans um að fella niður skuld við stofnunina.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Þar sem Vinnumálastofnun hefur ákveðið að afturkalla hina kærðu ákvörðun verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og stofnunarinnar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum